Hugsanlegt er að hægt verði að tilkynna um úrslit í kosningum til stjórnlagaþings á morgun. Útlit er fyrir að kosningaþátttaka verði um 40% í kosningunum, en kosningu lýkur kl. 22.
Um þriðjungur kjósenda í Reykjavík og 31% kjósenda í Kópavogi höfðu kosið til stjórnlagaþings klukkan 21 í kvöld. Búast má við að tölur um heildarkjörsókn á öllu landinu liggi fyrir um hádegi á morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá landskjörstjórn er möguleiki á að niðurstöður kosninganna liggi jafnvel fyrir fyrr en áður hafði verið talið eða annað kvöld. Það kemur þó í ljós um miðjan dag á morgun hvort að það tekst að tilkynna úrslit kosninganna annað kvöld.
Kjörkössum verður safnað saman í kvöld og talning hefst í Reykjavík kl. 9 í fyrramálið.