Spáir allt að 20 stiga frosti

Mikið frost var víða á landinu í nótt og er …
Mikið frost var víða á landinu í nótt og er spáð enn kaldara veðri í kvöld.

Mikið frost var á landinu í nótt. Samkvæmt yfirliti Veðurstofunnar varð kaldast í byggð á Þingvöllum eða -15,2°C.  Þá fór frostið í 14,7 stig í Húsafelli og litlu minna var það í Stafholtsey.  Þá mældist 14 stiga frost á Sauðárkróksflugvelli.

Þetta kemur fram í veðurbloggi Einar Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Hann segir að allir þessir staðir séu þekktir kuldapollar í froststillum.  Á hálendinu fékkst lægsta talan ofan úr Veiðavatnahrauni eða -16,4°C.

Yfir landinu miðju er staðbundinn miðja hæðar með þrýsting um og yfir 1040 hPa.  Hún er hluti víðáttumikils háþrýstings sem nú ríkir á stóru svæði umhverfis landið. Einar segir að horfur séu á því að frostið herði heldur, einkum í innsveitum og fari staðbundið yfir 20 stig í kvöld og nótt. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert