Umferðaróhapp varð við Hjörleifshöfða um klukkan 19 í kvöld. Þar losnaði afturdekk undan bifreið með þeim afleiðingum að hún endaði á hliðinni. Tvennt var í bílnum en að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli urðu minniháttar meiðsl á fólki. Ekki er vitað um ástæður þess að dekkið fór undan bílnum.