Undrast að Bandaríkin skuli ekki gæta skjala betur

Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson mbl.is/RAX

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir einkennilegt að lesa skýrslur bandarískra sendimanna um viðræður þeirra við Íslendinga og mat á stjórnmálaviðhorfinu innan lands. Raunar sé ótrúlegt, að mesta stórveldi heims skuli ekki hafa verið treystandi til að gæta slíkra skjala.

Þetta kemur fram í pistli sem Hannes Hólmsteinn ritar á Pressunni en þar lýsir hann boðum sem hann hafi setið í  bandaríska sendiherrabústaðnum við Laufásveg og snæddi þar eitt sinn hádegisverð með Carol van Voorst sendiherra.

„Hún spurði margs um íslensk stjórnmál, og reyndi ég að svara eftir bestu getu. Bandarískt hvítvín var reitt fram með matnum, en ég gat því miður ekki drukkið nema eitt glas, því að ég þurfti að sinna brýnum erindum síðdegis.

Fróðlegt væri að lesa skýrslu um samtalið, ef skrifuð hefur verið, en ég er viss um, að ég hef ekki sagt annað en það, sem koma má á prent og ég hef raunar sett oftar en einu sinni á prent"

Hannes snæddi einnig með Neil Klopfenstein, stjórnmálafulltrúa sendiráðsins, í húsi hans við Einimel.

Munurinn á Davíð og Ólafi Ragnari

„Hann var eins og van Voorst vel menntaður og vingjarnlegur maður. Hafi hann skrifað skýrslur um þessa fundi, þá væri líka fróðlegt að lesa þær. Stundum læddist þó að mér sú hugsun, að þetta sendiráðsfólk hitti oftast ekki venjulega Íslendinga, heldur aðeins einstaklinga úr hinum talandi stéttum, kaffihúsaspekinga og farandfræðimenn, sem hafa stutta viðdvöl á hverjum stað eftir því, hvaða styrkir eru í boði. Margir þessara manna láta fleðulega við bandaríska sendimenn, en eru ekki vinir Bandaríkjamanna, þegar á reynir.

Þar er munurinn á Davíð Oddssyni og Ólafi Ragnari Grímssyni skýr. Davíð er vinur Bandaríkjamanna, þótt hann hafi ætíð komið fram við þá af hreinskilni og einurð og gætt hagsmuna Íslands. Ólafur Ragnar er eins og margir aðrir vinstrisinnaðir menntamenn í raun og veru andvígur Bandaríkjunum. Hið sanna innræti hans kom í ljós, þegar hann móðgaði vísvitandi Carol van Voorst sendiherra með því að tilkynna henni, að hún fengi fálkaorðuna, er hún var á förum héðan, en lét hringja í hana í bílnum á leið til Bessastaða og segja henni, að ekkert yrði af orðuveitingunni. Hafa aldrei fengist skýringar á þessari ruddalegu og ótrúlegu framkomu, en ég hef það fyrir satt, að Ólafur Ragnar hafi ætlað að hefna sín fyrir það, að van Voorst gat ekki eða vildi ekki tryggja, að hann gæti tekið þátt í innsetningarathöfn Obama forseta í janúar 2009," segir í pistli Hannesar Hólmsteins á Pressunni í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert