Á þriðja tímanum í nótt var tilkynnt til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu að sést hafði til manns sem væri með byssu á skemmtistað í miðborginni, þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn á bak og burt.
Þá hófst leit af honum en vitni gátu gefið góða lýsingu á manninum og um klukkustund síðar handtók lögregla hann inni á öðrum skemmtistað. Í ljós kom að hann var með hlaðinn riffil meðferðist sem og nokkurt magn skotfæra.
Einnig fanns á manninum nokkurt magn fíkniefna sem talið er að hann hafi ætlað að selja.
Maðurinn verður yfirheyrður í dag vegna málsins en lögregla gefur ekki frekari upplýsingar um málið í dag.