Fimmtungur ók of hratt

Á einni klukkustund óku 21% ökumanna á leið norður eftir Sæbraut á of miklum hraða. Alls er um að ræða 150 ökumenn af þeim 727 sem voru mældir, eða 21%. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst, en hámarkshraðinn á leiðinni er 60 km/klst. Sá sem ók hraðast var á 92 km/klst hraða.

Á umræddum vegarkafla hefur verið nokkuð um umferðaróhöpp og þannig var vöktun lögreglunnar tilkomin. Hún mun jafnframt verða við hraðamælingar á fleiri slíkum stöðum á næstunni. Þess má geta að við hraðamælingar á nákvæmlega sama stað á Sæbraut fyrir tæpum þremur vikum var brotahlutfallið 26%.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert