Íshellan hugsanlega hættuleg

Stórir borgarísjakar sáust fyrir utan Straumnes.
Stórir borgarísjakar sáust fyrir utan Straumnes. mbl.is/Landhelgisgæslan

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNA fór í dag í gæslu- og hafíseftirlit fyrir Vestfirði. Kom þyrlan að ísrönd sem liggur milli Íslands og Grænlands til austurs. Kemur ísröndin næst landi um 21,7 sjómílu norður af Horni, 25,3 sjómílur frá Straumnesi og 43,6 sjómílur frá Barða, þar er hafísinn orðinn samfrosinn og með stórum íshellum sem geta verið hættulegar skipum.

Þar sem ísinn er næst landi, eða 21,7 sjómílur norður af Horni er hann nokkuð gisinn og virðist þar hafa átt sér stað talsverð nýmyndun á ís. Fyrir utan Straumnes var ísinn þéttur en þegar komið var að hafís sem staðsettur er 43,6 sjómílu frá Barða var ísbreiðan samfrosin með stórum íshellum. Sáust þar fimm stórir borgarísjakar sem voru frá 30 metrum og upp í 110 metra á hæð.

Ekki er talin stafa mikil hætta af sjálfum borgarísjökunum þar sem þeir sjást vel á ratsjá og voru vel innan við ísröndina.  Voru þeir þó nokkuð sprungnir og ekki er talið ólíklegt að brotni úr þeim. Getur þá stafað af þeim hætta.

mbl.is/Landhelgisgæslan
Sumir borgarísjakarnir eru 110 m háir.
Sumir borgarísjakarnir eru 110 m háir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert