9 af hverjum 100 óku of hratt

Lögreglumenn við umferðareftirlit. Mynd úr safni.
Lögreglumenn við umferðareftirlit. Mynd úr safni. mbl.is/Júlíus

Brot 53 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í dag. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að hún hafi fylgst með ökutækjum sem hafi ekið ekið Bústaðaveg í vesturátt, við Suðurhlíð.

Á einni klukkustund fyrir hádegi hafi 593 ökutæki farið þessa akstursleið og þar af leiðandi hafi 9% þeirra ekið of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Fimm óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 85.

Að sögn lögreglu hefur verið verið nokkuð um umferðaróhöpp á þessum vegarkafla og þannig hafi vöktun lögreglunnar verið tilkomin.

Lögreglan mun jafnframt verða við hraðamælingar á fleiri slíkum stöðum á næstunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert