Umhverfisráðuneytið hefur unnið áætlun um framkvæmd stefnumörkunar um líffræðilega fjölbreytni. Stefnumörkunin var samþykkt í ríkisstjórn árið 2008 en Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipaði starfshóp fyrr á þessu ári til að vinna áætlun um framkvæmd stefnumörkunarinnar.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir á vef ráðuneytisins að samningurinn um líffræðilega fjölbreytni sé einn mikilvægasti alþjóðasamningurinn sem Ísland eigi aðild að. Með gerð framkvæmdaáætlunarinnar hafi loksins verið lögð fram áætlun um það hvernig Ísland muni uppfylla ákvæði hans. Hún segir það mikilvægt skref í átt til ábyrgrar umhverfisstjórnunar hér á landi og sjálfbærrar þróunar.
Samkvæmt framkvæmdaáætluninni er m.a. talið nauðsynlegt að auka umfang vöktunar Náttúrufræðistofnunar Íslands, Hafrannsóknarstofnunar, Landgræðslu ríkisins og annarra vöktunarstofnana á þurrlendi, ferskvatni og hafinu umhverfis landið svo hægt verði að fylgjast með þróun líffræðilegrar fjölbreytni og grípa til verndaraðgerða ef þörf reynist. Þá er m.a. talið mikilvægt að sem fyrst verði gengið frá íslenskum vísum fyrir vöktun líffræðilegrar fjölbreytni sem sýna ástand lykilþátta lífríkisins.
Ekki hefur verið settur tímarammi fyrir framkvæmdaáætlunina í heild, segir á vef ráðuneytisins, en samráðshópurinn telur mikilvægt að vinna markvisst að framkvæmd hennar á næstu þremur árum, það er innan tímamarka náttúruverndaráætlunar. Sum verkefni munu þó taka lengri tíma, svo sem kortlagning lífríkis og gerð gróður- og vistgerðakorta, auk þess sem vöktunarverkefni eru eðli málsins samkvæmt viðvarandi.
Í starfshópnum sátu Þorsteinn Tómasson fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, Áslaug Helgadóttir fyrir iðnaðarráðuneytið og Sigurður Ármann Þráinsson fyrir umhverfisráðuneytið, en hann leiddi starf hópsins.