Samninganefndin farin til London

mbl.is/Ómar

Samninganefnd íslenskra stjórnvalda vegna Icesave-málsins hélt í morgun til fundar í Lundúnum með fulltrúum breskra og hollenskra stjórnvalda. Á þeim fundum verður framhaldið viðræðum til lausnar Icesave-málsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. 

„Fréttir um mögulega kynningu á óorðnum samningi eða óorðnum hlutum eru ekki frá fjármálaráðuneytinu komnar. Ég hygg að við myndum reyna að standa að því á þann hátt sem eðlilegast er,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

„Væntanlega yrði fyrst byrjað á því að samninganefndin kynnti formönnum stjórnmálaflokkanna þá niðurstöðu sem hún hefði komist að, eða þann mögulega samning sem kynni þá að vera hægt að gera. Þetta einfaldlega snýr þannig að samninganefndin er að reyna til þrautar að komast að niðurstöðu um það hvernig gæti samningur litið út. Hvert gæti orðið efnisinntak hans. Hann verður að sjálfssögðu ekki undirritaður á því stigi málsins,“ segir Steingrímur án þess að tjá sig nánar um samningaviðræðurnar.

Í hádegisfréttum RÚV var haft eftir upplýsingafulltrúa hollenska fjármálaráðuneytisins að góður gangur sé í viðræðunum, tveggja lögfræðiálita sé beðið frá íslensku samninganefndinni, en þau gegni lykilhlutverki við lausn deilunnar.

Þá segir á vef RÚV að íslenska samninganefndin hafi fundað ásamt fulltrúum fjármálaráðuneytisins í ráðuneytinu í gær. Samninganefndin hafi svo haldið af landi brott í morgun til frekari samningaviðræðna við fulltrúa Breta og Hollendinga um lausn deilunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert