Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir á Facebooksíðu sinni að það sé með ólíkindum hvað hægt er að endurtaka sömu Icesave-sýninguna oft. Þingið hafi ekki enn séð staf á blaði.
Segir Sigmundur Davíð að alltaf sé verið að búa til einhverja spennu. Ég veit ekki hversu oft er búið að fullyrða í fréttunum að nefndin hafi fullt umboð til að klára málið, jafnvel þótt SJS (Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra,) sé sjálfur búinn að segja annað. Það eina sem er að gerast er að verið er að kanna hvort Bretar og Hollendingar koma með nýtt tilboð. Þingið hefur enn ekki séð staf á blaði."