Hollenska fjármálaráðuneytið hefur greint frá því að samkomulag hafi náðst í Icesave deilu Íslendinga, Breta og Hollendinga.
Í frétt Reuters segir að skuld Íslands nemi 5 milljörðum Bandaríkjadollara.
Íslendingar munu greiða Hollendingum 3% vexti og Bretum 3,3%.
Í frétt á Bloomberg fréttastofunnar segir að fjármálaráðherra Hollands, Jan Cees de Jager, hafi þegar látið þing landsins vita af stöðu mála.