Íslensk heimsíða um heimsminjar

Þingvellir eru á heimsminjaskrá UNESCO.
Þingvellir eru á heimsminjaskrá UNESCO. mbl.is/Jakob Fannar

Heimsminjanefnd Íslands hefur opnað heimasíðu um heimsminjasamning UNESCO og framkvæmd hans hér á landi. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnuðu síðuna formlega í gær.

Fram kemur í tilkynningu að heimsminjasamningurinn miði að því að vernda bæði menningarminjar og náttúruminjar sem séu einstakar í heiminum. Á heimasíðunni megi finna fréttir af samningnum, upplýsingar um aðild Íslands að honum og um Þingvelli og Surtsey, en það séu þeir staðir á Íslandi sem séu á heimsminjaskrá UNESCO.

Þá segir að Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarráðherra hafi bent í ávarpi sínu á nauðsyn þess að gefa Íslendingum kost á því að kynna sér málefni heimsminja frá íslensku sjónarhorni þar sem starf tengt heimsminjamálum hafi mikla þýðingu fyrir Ísland - bæði heima og á alþjóðavísu og nokkuð hafi borið á skorti á gagnlegum upplýsingum um þetta málefni.

Í máli Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra hafi m.a. komið fram að samstarf umhverfisráðuneytisins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins við undirbúning aðildar að samningnum og við framkvæmd hans hafi verið til fyrirmyndar.

Nú sé í undirbúningi alþjóðleg tilnefning víkingaminjastaða sem Ísland sé í forsvari fyrir. Einnig sé unnið að gerð nýrrar skrár yfir þá staði sem Ísland geti hugsanlega tilnefnt á næstu árum, m.a. Vatnajökulsþjóðgarð sem náttúruminjar og íslenskar torfbyggingar sem menningarminjar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert