„Þessi niðurstaða er miklu betri en maður þorði að vona“, sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra á blaðamannafundi um nýjan Icesave samning í dag.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að þótt sá samningur sem nú liggi fyrir sé hagstæðari en sá fyrri verði einnig að horfa til þess að samningsstaða Íslands hafi batnað og vextir lækkað.