LS: Stöðvun veiða blasir víða við

Ýsur í kari.
Ýsur í kari. mbl.is/Ómar

Landssamband smábátaeigenda (LS) segir að krókaflamarksbátar eigi innan við þriðjung eftir af úthlutuðum veiðiheimildum í ýsu eftir fyrsta fjórðung fiskveiðiársins. Stöðvun veiða vegna skorts á ýsu blasi víða við. LS segir ástandið grafalvarlegt og að það sé knýjandi að stjórnvöld komi að málinu.

Stefna LS sé skýr í málinu, þ.e. að ýsa veidd á dagróðrabáta teljist aðeins að hálfu til kvóta.

„Gríðarlegra óánægju gætir hjá smábátaeigendum með veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í ýsu.  Stofnunin lagði til að veiðiheimildir yrðu minnkaðar niður í 45 þúsund tonn sem er aðeins tæpur helmingur af því sem hún lagði til fyrir tveimur árum.  Sjávarútvegsráðherra ákvað hins vegar að ýsukvóti þessa árs yrði 50 þús. tonn.   Sjómenn sem stunda veiðar á grunnslóð eru sammála um að ýsugengd þar sé nú meiri en á sl. ári.  Því kom þeim mikill niðurskurður á óvart.  Þeir segja ýsuráðgjöfina taka mið af veiðum á togslóð, enda fari togararallið þar fram.  Þar sé vissulega minna af ýsu og sína aflatölur að ýsuveiðar togara hafa gengið illa, þessu er öfugt farið á grunnslóðinni,“ segir á vef LS.

Bent er á að að fyrstu þremur mánuðum fiskveiðiársins hafi verið búið að veiða 13.519 tonn af ýsu. Af því hafi krókaaflamarksbátar veitt 41,3% af heildarýsuaflanum eða 5.588 tonn. 

Ýsuafli togara hafi hins vegar aðeins verið þrjú þúsund tonn eða 22,6% af heildarafla ýsu. 

Til samanburðar er bent á að á þessu tímabili árið 2007 hafi afli togara verið 10.343 tonn, eða rúmur þriðjungur þess sem þá hafði verið veitt en ýsuafli krókaflamarksbáta tæp átta þúsund tonn eða 26,4% heildarýsuafla á fyrsta ársfjórðungi fiskveiðiársins 2007/2008.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert