„Bíða bara eftir þriðju umræðu“

Bjarni Benediktsson á Alþingi.
Bjarni Benediktsson á Alþingi. mbl.is/Ómar

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, beindi spurningu til Steingríms J. Sigfússonar í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi sem hófst kl. 10.30 í morgun. Bjarni spurði Steingrím hvort búast mætti við frekari breytingum á fjárlagafrumvarpinu fyrir þriðju umræðu þess í þinginu.

Bjarni kvað það hafa komið í ljós eftir aðra umræðu frumvarpsins að það nyti ekki fulls stuðnings allra þingmanna stjórnarflokkanna.

Bjarni sagðist hafa lesið um það í fjölmiðlum að þingmenn VG, utan fjárlaganefndar, vinni nú að frekar breytingum á fjárlagafrumvarpinu og spurði því Steingrím hvort hann gæti greint frá þeirri vinnu. Bjarni kvað fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd ekki kannast við slíkar breytingar og sagðist því finna sig knúinn til þess að spyrja hvort draga eigi úr niðurskurði og hvort til standi að auka tekjur með einhverjum hætti sem ekki hefur verið gert grein fyrir.


Steingrímur sagði fjárlagafrumvarpið erfitt. „Að sjálfsögðu er efni þessa frumvarps erfitt og það er ekkert nýtt," sagði Steingrímur og bætti við að þær breytingar á frumvarpinu sem gerðar verða fyrir þriðju umræðu yrðu ekki jafn miklar og þær breytingar sem gerðar voru á því fyrir aðra umræðu. „Eftir því sem ég best veit eru fjárlaganefnd og þeir þingmenn sem þar sitja að vinna að þessu.“

 Þá hvatti Steingrímur Bjarna Benediktsson og aðra þingmenn til að „bíða bara eftir þriðju umræðu“ og meta frumvarpið þá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert