Dæmd í fangelsi fyrir fjárdrátt

Héraðsdómur Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness. mbl.is/Ómar Óskarsson

29 ára gömul kona var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt í opinberu starfi. Eru 22 mánuðir skilorðsbundnir.  Hún var þá starfsmaður sendiráðs Íslands í Vín í Austurríki. Fjárdrátturinn nam samtals rúmlega 50 milljónum króna.

Konan var sendiráðsfulltrúi í sendiráði Íslands í Vín í Austurríki og síðar stjórnarráðsfulltrúi og starfsmaður á rekstrar- og þjónustusviði utanríkisráðuneytisins. Hún var ákærð fyrir að hafa dregið sér og notað heimildarlaust í eigin þágu samtals 335.768 evrur. Hún millifærði í 193 skipti af reikningi í eigu íslenska sendiráðsins í Vínarborg, sem hún hafði prókúru fyrir, yfir á eigin bankareikning.

Hún lét einnig hjá líða að tilkynna að hún væri enn að fá staðaruppbót eftir að hún flutti heim frá Vín.

Konan játaði sakargiftir við þingfestingu málsins í síðasta mánuði

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert