Tiger innkallar leikföng

Leikfangið sem Tiger er að innkalla
Leikfangið sem Tiger er að innkalla

Verslunin Tiger hefur ákveðið að innkalla af neytendum dýrapúsl með segli, tvö dýr saman í hvítu tréboxi.

Vara þessi er með model númerið 1700204 og strikamerki 0200017002046 og var seld fyrir þremur árum í verslunum Tigers.

Á leikföngunum er segull sem getur losnað og valdið hættu á köfnun og innvortis meiðslum. Verslunin bendir neytendum sem kunna vera með þessa vöru að skila henni gegn endurgreiðslu í einhverja af verslunum sínum, samkvæmt vef Neytendastofu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert