Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði, metinn á föstu verði, var 0,5% minni en í nóvember 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 8,0% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.
Aflinn nam alls 83.811 tonnum í nóvember 2010 samanborið við 85.698 tonn í sama mánuði árið áður.
Botnfiskafli
stóð nánast í stað frá nóvember 2009, var um 37.500 tonn. Hlutur
þorskafla þar af nam rúmum 17.000 tonnum og jókst um rúm 900 tonn frá
fyrra ári. Ýsuaflinn var tæplega 5.600 tonn, sem er 271 tonni meiri afli
en í nóvember 2009. Um 3.900 tonn veiddust af ufsa, sem er tæplega
2.400 tonnum minni afli en í nóvember 2009. Karfaaflinn jókst um tæp 800
tonn og nam um 5.000 tonn. Rúmlega 300 tonna aukning var í öðrum
botnfiskafla milli ára og nam hann tæpum 5.900 tonnum.
Afli
uppsjávartegunda var rúmlega 44.000 tonn, sem er um 1.400 tonnum minni
afli en í nóvember 2009. Var sá afli líkt og árið áður nær eingöngu
síld.
Flatfiskaflinn var tæp 1.400 tonn í nóvember 2010 samanborið við rúm 1.900 tonn árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn var 518 tonn og dróst saman um 99 tonn frá fyrra ári.
Munur á afla á föstu verði og í tonnum