Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gær. Við húsleit fundust 10 kannabisplöntur en innandyra voru þrír karlar á þrítugsaldri í óða önn að klippa niður afraksturinn.
Þeir voru komnir með 350 grömm af marijúana þegar að var komið. Þremenningarnir voru handteknir og fluttir á lögreglustöð, segir lögregla í tilkynningu.