Boðað hefur verið til blaðamannafundar kl. 15 í dag þar sem víðtækt samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja verður kynnt.
Að því standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands.