Ekið á fánastöng og inn í garð

mbl.is

Mjög hált er á götum Akureyrar að sögn lögreglunnar á staðnum. Þar hafa orðið fjögur umferðaróhöpp í dag og gerðust þau öll í neðri hluta brekkunnar og á Eyrinni.


Í tveimur árekstranna rákust tveir bílar saman, í eitt skipti ók bíll á fánastöng og einnig ók bíll á grindverk og hafnaði í garði.

Engin slys urðu á fólki, en eignatjón er umtalsvert.

Að sögn lögreglunnar á Akureyri er mjög hált víða við gatnamót. Búið er að setja sand á hluta af götum bæjarins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert