Kostnaður við málsókn slitastjórnar Glitnis gegn fyrrum hluthöfum og stjórnendum Glitnis fyrir dómstóli í New York nemur nú 375 milljónum króna, samkvæmt upplýsingum frá slitastjórninni. Þá upplýsir stjórnin að 90% kröfuhafa Glitnis séu erlendir og eignir séu að langmestu leyti staðsettar utan Íslands.
Segir í tilkynningu að kostnaðurinn sé ekki hár samanborið við þá hagsmuni sem slitastjórn sé að berjast fyrir að ná til baka til kröfuhafa. Dómari í New York ákvað í vikunni að vísa máli Glitnis frá á grundvelli þess, að aðillir aðilar þess væru íslenskir.
„Ákvörðun um málsókn var tekinn á grundvelli ráðgjafar virtrar bandarískrar lögmannsstofu enda snérist málareksturinn að grunni til um útboð sem fór fram í Bandaríkjunum og á grundvelli þarlendra laga. Þess utan háttar svo til, að margir hinna stefndu eru með lögheimili utan Íslands. Þá er vakin á því athygli að málinu var vísað frá með skilyrðum um viðurkenningu hinna stefndu á lögsögu íslenskra dómstóla og aðfararhæfi og þess utan var hverjum aðila málsins gert að bera sjálfur sinn kostnað,“ segir í tilkynningunni.
„Slitastjórnin vill einnig upplýsa að u.þ.b. 90% kröfuhafa Glitnis eru erlendir og eignir að langmestu leyti staðsettar utan Íslands. Heildarendurheimtur sem Glitnir hefur þegar fengið greiddar vegna rannsókna frá upphafi til dagins í dag nema 3150 milljónum króna. Heildarkostnaður þessa málaflokks þ.m.t. ofangreindur kostnaður svo og annar lögfræðikostnaður, endurskoðendakostnaður og kostnaður vegna rannsóknarfyrirtækisins Kroll nemur nú alls 1271 milljón króna,“ segir ennfremur.