Ekkert ferðaveður er á landinu, samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum. Norðan hvassviðri eða stormur er um nær allt land. Vaxandi ofankoma um landið norðanvert og má búast við að færð spillist þar þegar líður á daginn, samkvæmt frétt á vef Veðurstofunnar.
Það er óveður á Vatnsskarði eystra en veður er heldur að lagast á
Fjarðarheiðinni. Þar er þó enn mjög blint og mokstur í biðstöðu.
Annarsstaðar á Austurlandi er viðunandi ferðaveður og vegir færir.
Ekkert ferðaveður er hins vegar á Suðausturlandi, frá Djúpavogi og raunar alveg vestur fyrir Vík.
Éljagangur er á Norðurlandi vestra en ekki mikið farið að festa á vegi.
Töluvert meiri úrkoma er við Eyjafjörð og í Þingeyjasýslum. Stórhríð er á
Mývatnsöræfum og Hólasandi.
Vegir eru auðir á Suðurlandi, samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum eru vegir að mestu auðir en farið er að élja. Mjög hvasst er á Bröttubrekku.