Icesave-samningarnir eru komnir til fjárlaganefndar Alþingis og heldur hún sinn fyrsta fund um málið í dag. Fyrstu umræðu um málið lauk í gær og var frumvarpi fjármálaráðherra um málið síðan vísað til nefndar.
Reiknað er með að fjárlaganefnd muni fjalla um málið þangað til þing kemur saman að nýju í janúar. Frumvarpið verður sent til umsagnar og gestir munu koma á fund nefndarinnar.