Þúsundir skora á forsetann

Hundruð manna gengu með neyðarblys að Bessastöðum til að skora …
Hundruð manna gengu með neyðarblys að Bessastöðum til að skora á forseta Íslands að synja Icesave-lögunum staðfestingar. Rax / Ragnar Axelsson

Rétt tæplega 16.000 manns eru skráðir á Facebook-síðu þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að synja nýja Icesave-samningnum staðfestingar. Stofnandi síðunnar segir áskorunum hafa fjölgað um 12-15% á síðustu dögum.

Nú fyrir stundu voru 15.877 skráðir á Facebook-síðu Guðmundar Franklíns Jónssonar athafnamanns en fyrr í dag var ofmælt á fréttavef Morgunblaðsins að ríflega 34.800 manns hefðu skráð sig á síðuna. Var það byggt á upplýsingum sem vefurinn fékk í hendur og hefur fréttin verið uppfærð með þetta í huga.

Aðspurður hvort ofangreind tala, þ.e. hátt í 16.000 manns, sé marktæk í ljósi þess að síðan var stofnuð fyrir synjun forsetans á Icesace-lögunum 5. janúar sl. segir Guðmundur Franklín svo vera, enda sé afar auðvelt að skrá sig af síðunni.

„Það er greinilegt að netsamfélagið er aftur að lifna við. Það hefur verið mikil hreyfing á síðunni á síðustu dögum og sýnist mér sem áskorunum hafi fjölgað um 12-15% frá því nýju Icesave-samningarnir voru kynntir. Til viðbótar má benda á aðrar undirskriftarsíðar þar sem forsetinn, Ólafur Ragnar Grímsson, er hvattur til hins sama,“ segir Guðmundur Franklín.

Deilt um skuldabyrðina 

Stjórnarandstaðan áætlar að nýju samningarnir séu um 490 milljörðum króna hagstæðari en þeir síðustu.

Á það er hins vegar bent að mikil óvissa er um áhrif gengisbreytinga á afborganir vegna nýju samninganna og hefur verið áætlað að kostnaðurinn geti numið allt að 170 milljörðum króna, eins og rakið var í Morgunblaðinu í gær.

Þá er haft eftir Pétri H. Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, í Morgunblaðinu í dag að óvissa sé um hvort íslenska þjóðarbúið geti staðið undir nýja Icesave-samningnum. Skuldirnar séu miklar og telur Pétur að ríkisstjórnin hafi ekki yfirsýn yfir skuldastöðu þjóðarbúsins, að frátöldum skuldum vegna nýja samningsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert