Veður hefur nú lægt nokkuð á Akureyri.
Enn er þungfært innanbæjar. Víkurskarð er algerlega ófært, að sögn lögreglunnar á Akureyri. Þar er snjór og skafrenningur og auk þess eru fólksbílar fastir þar og loka veginum.
Ekki er möguleiki á að sækja þá fyrr en á morgun vegna veðurs.