Kvöldvakt Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins byrjaði með miklum erli í sjúkraflutningum. Þá var tilkynnt um boð frá reykskynjara í íbúð í Arahólum. Nágranni hafði heyrt í skynjaranum og lét vita.
Slökkviliðsmenn komu á staðinn í sama mund og eiganda íbúðarinnar bar að garði. Hann taldi málið vera minniháttar og afþakkaði aðstoð slökkviliðsins.