Jepplingur valt nálægt Fáskrúðsfirði á tíunda tímanum í kvöld. Lögreglan á Fáskrúðsfirði segir engin alvarleg slys á fólki hafa orðið en bílstjóri og farþegi hafa verið fluttir á fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupsstað til aðhlynningar.
Talið er að bílstjórinn hafi misst stjórn á ökutækinu og hafnað utan vegar.