Breytingar verða á gjaldskrá leikskóla Reykjavíkur frá og með 1. janúar 2011, en gjaldskráin hefur verið óbreytt sl. 2 ár. Við breytinguna hækkar fæðis- og námsgjald í 4-8 stundir um 5,35%. Gjöld umfram átta stunda vistun hækka ekki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.
Fram kemur að fyrir hjón og sambúðarfólk með barn í átta stunda vistun hækki gjaldið um 1.105 kr. á mánuði eða úr 20.655 kr. í 21. 760 kr. Gjald fyrir einstæða foreldra, öryrkja og foreldra sem báðir séu í námi hækki um 653 kr. eða úr 12.207 kr. í 12.860 kr.
Þá segir að ef annað foreldri sé í námi hækki leikskólagjöld um 4.961 kr. mánuði eða úr 16.799 kr. í 21.760 kr. Með hækkuninni sé gjaldskráin einfölduð og færð til samræmis við úthlutunarreglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna þar sem lán námsmanns skerðist ekki vegna tekna maka.
Um áramótin verða einnig breytingar á systkinaafslætti í þá veru að afsláttur vegna annars barns verður 75% af námsgjaldi í stað 100% en þriðja og fjórða systkinið nýtur 100% afsláttar af námsgjaldinu. Systkinaafsláttur reiknast eingöngu af námsgjaldi og nemur munur á 100 % afslætti og 75% afslætti 3.800 kr.
Námsgjald fyrir börn í elsta árgangi leikskóla verður það sama og fyrir yngri börn frá og með 1. september 2011. Breytingin hefur engin áhrif á gjald þeirra foreldra sem nú þegar njóta þessa afsláttar fyrir 5 ára börn.