Katrín Snæhólm Baldursdóttir, varaþingmaður Þráins Bertelssonar, þingmanns Vinstri grænna, starfar með þinghópi Hreyfingarinnar og segist mundu tilheyra þingflokki Hreyfingarinnar ef hún yrði kölluð inn á þing í forföllum Þráins. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Þráinn Bertelsson segist vonsvikinn með ósamstöðuna hjá vinstrimönnum á þingi og segist munu forðast það í lengstu lög að kalla til varamann. „Ég er sem betur fer heilsugóður og bjargast alveg ágætlega án varamanns," segir Þráinn, í samtali við Fréttablaðið.