60,2% Íslendinga telja að fjármunum hafi verið frekar eða mjög illa varið í stjórnlagaþing en 28,3% telja að þeim hafi verið frekar eða mjög vel varið.
Þetta kemur fram í könnun sem Miðlun ehf. vann fyrir Andríki um álit almennings á kostnaði við stjórnlagaþing.
Sigríður Á. Andersen, sem situr í ritstjórn Andríkis, segir könnunina draga upp glögga mynd af afstöðu almennings. „Ríkisstjórnin talaði samt eins og þetta ætti að vera í takt við þjóðina.“ Niðurstöður könnunarinnar gefa glögga mynd af því að þeir sem búa á landsbyggðinni telja fjármunum frekar hafa verið illa varið en þeim sem búa á höfuðborgarsvæðinu. 68,6% þeirra sem búa á landsbyggðinni taldi fjármunum illa varið en 55,4% á höfuðborgarsvæðinu.