Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra, segir að krafa Háskóli Íslands um hækkun skrásetningargjalda sé sanngjörn. Hún sé liður í að standa vörð um gæði háskólastarfs.
Þorgerður Katrín segir á heimasíðu sinni, að óskir Háskóla Íslands eigi ekki að koma fólki á óvart þegar ætlast er til að Háskóli Íslands taki inn í skólann hátt í 1000 fleiri nemendur án þess að hann fá neitt greitt fyrir það. Þetta þýði einfaldlega, ef ekkert er að gert, að menntamálayfirvöld ætli skólanum að slaka á gæðum.
„Þessi
ósk um hækkun innritunargjalda hefur legið fyrir nokkuð lengi af hálfu
allra ríkisháskólanna. Samt var lítt gert með þá ósk. Á sínum tíma þegar
gjöldin voru hækkuð í 45 þúsund krónur varð mikil umræða í þinginu.
Töldu vinstri menn að sú hækkun ynni gegn jöfnum rétti til háskólanáms.
Reynslan hefur sýnt hið gagnstæða. Sókn í háskólanám hefur aldrei verið
meiri en á síðustu árum, þrátt fyrir innritunargjöldin. Eðlilegt er að
þau hækki í takti við verðlag og vísitölu ekki síst þegar stjórnvöld
virðast ekki styðja við skólanna sem skyldi.“