Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum ákvað að starfsmenn í
landvinnslu fyrirtækisins fengju greiddan 200.000 króna kaupauka nú
fyrir jólin. Þeir sem hafa verið í fullu starfi allt árið fá þessa
upphæð en aðrir fá greitt í samræmi við starfshlutfall.
Alls eru nú um 280 stöðugildi til lands og sjávar hjá Vinnslustöðinni og fjölgaði um 50 árið 2010. Eitt skip bættist í flota félagsins á árinu.