Á síðustu metrunum í Kringlunni

Í Kringlunni fyrir stundu.
Í Kringlunni fyrir stundu. Morgunblaðið/Golli

Talsverður fjöldi fólks lagði leið sína í Kringluna undir hádegið til að leggja lokahönd á jólaundirbúninginn. Verslanir Kringlunnar loka klukkan 13.00 en Hagkaup verður hins vegar opið klukkustund lengur, eða til 14.00.

Verslanir Kringlunnar opnuðu klukkan 10.00 en verslunarmiðstöðin verður lokið á jóladag og á öðrum degi jóla.

Opið er frá 10.00-13.00 á gamlársdag en lokað á nýársdag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert