„Það er enginn veðurofsi hér,“ sagði Jóhanna Sólveig Þórhallsdóttir, ábúandi á bænum Skálakoti, um 35 km frá Hvolsvelli, fyrir stundu. Var þá hvasst þar en ekkert aftakaveður. „Það er ekkert að veðrinu hér.“
Skálakot er sunnan við Hvolsvöll og tekur Jóhanna Sólveig fram að hvassara geti verið undir Eyjafjöllum.
Hún segir veðrið hafa verið skaplegt í nótt, þótt rokið hafi verið talsvert.