Farþegar með íslensku félögunum ættu að komast heim

Farþegar rýna á upplýsingatöflu á Charles-de-Gaulle flugvellinum við París í …
Farþegar rýna á upplýsingatöflu á Charles-de-Gaulle flugvellinum við París í gær. reuters

Það leit út fyrir að allir flugfarþegar sem áttu bókað flug til Íslands fyrir jól kæmust til landsins þegar leitað var upplýsinga hjá flugfélögum í gærkvöldi.

Miklar tafir hafa verið á flugi í Evrópu undanfarið vegna veðurs.

„Þetta hefur gengið þokkalega. Það er allt að færast í eðlilegt horf aftur vonandi,“ segir Kristín Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Iceland Express. Hún segir tafir hafa orðið á flugi frá Lúxemborg í fyrradag vegna þoku þar en þeir farþegar hafi komist til landsins í gær.

Hjá Icelandair er sömu sögu að segja, einhverjar tafir urðu á Evrópuflugi en þær voru minniháttar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert