Herjólfur mun ekki sigla á morgun, jóladag, vegna veðurs. Ein ferð hafði verið ráðgerð til Landeyjahafnar en samkvæmt upplýsingum frá Eimskip er veðurspáin afleit og aðstæður í höfninni óljósar.
Veðurspá fyrir annan í jólum er enn verri og gæti truflað ferðir þann dag, segir í frétt frá Eimskip.