Tilraun til innbrots í Skipholti

Reynt var að brjótast inn í heimahús í Skipholti. Myndin …
Reynt var að brjótast inn í heimahús í Skipholti. Myndin er sviðsett. Eggert Jóhannesson

Karl og kona voru handtekin við Skipholt í Reykjavík um kl. 14 í dag eftir að hafa reynt að brjótast inn í heimahús. Voru þau með kúbein meðferðis en eftir að þeim mistókst að spenna upp glugga létu þau sig hverfa. Vitni hringdu á lögregluna og hafði hún upp á parinu skammt frá.

Að sögn lögreglunnar er um góðkunningja hennar að ræða. Parið var í annarlegu ástandi og gistir nú fangageymslur meðan það sefur úr sér vímuna. Verða þau væntanlega bæði tvö yfirheyrð á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert