Mennirnir fjórir sem réðust á íbúð í Ásgarði í Reykjavík á aðfangadag eru nú í yfirheyrslum og stendur rannsókn málsins yfir.
Eins og fram hefur komið réðust mennirnir á raðhús í hverfinu, að sögn til að innheimta fíkniefnaskuld, fyrst með höggum og spörkum á útihurð, en því næst með því að skjóta þrívegis á og í gegnum hurðina með byssu. Eru þeir grunaðir um tilraun til manndráps.
Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir aðspurður að ekkert nýtt sé að frétta af rannsókninni sem hann geti greint frá.
Einn maður sem handtekinn var vegna málsins og hefur stöðu grunaðs manns var ekki úrskurðaður í gæsluvarðhald, þó svo að ákæruvaldið gerði kröfu um það, en hinum fjórum var gert að sitja tíu daga í varðhaldi.
Friðrik Smári segir aðspurður að rannsóknin beinist þó enn að þeim manni og ekkert hafi breyst hvað varðar hans stöðu sem grunaður maður, frá því að málið kom upp. Sá er grunaður um að hafa skipulagt árásina og að vera nokkurs konar höfuðpaur í málinu.
Friðrik vill ekki tjá sig um afstöðu árásarmannanna til sakargiftanna, eða hvort þeir gangist við því að þeir hafi ætlað að ráða manninum bana. Eins og alltaf þegar menn eru hafðir í gæsluvarðhaldi er stöðugt unnið að rannsókninni og breytir þar engu um þótt jólahátíðin standi nú sem hæst.