Enn berast tilkynningar um þjófnaði og innbrot

mbl.is/Júlíus

Brotist var inn í fyrirtæki í Hlíðarsmára í Kópavogi um kl. 20:30 í kvöld. Þjófurinn braut rúðu til að komast inn í húsnæðið. Ekki liggur fyrir hvað hann hafði á brott með sér, en hann var á bak og burt þegar lögreglan kom á vettvang.

Þá var tilkynnt um þjófnað á öðrum stað í Kópavogi kl. 16:30. Þar var farið inn í ólæst herbergir og þaðan stolið tölvu. 

Einnig var tilkynnt um innbrot á heimili í vesturbæ Reykjavíkur um sexleytið í kvöld. Þaðan var raftækjum stolið, m.a. flatskjá. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert