Margra vikna aðalmeðferð í málum sérstaks saksóknara

Sérstakur saksóknari.
Sérstakur saksóknari. mbl.is/Golli

Talið er að aðalmeðferð í þyngstu málunum sem koma munu frá sérstökum saksóknara til dómstóla taki fjórar til sex vikur. Eftir að mál eru lögð í dóm er talið að dómasamning muni taka tvo til þrjá mánuði. Víst þykir að fyrstu málin í þeim flokki komi fram á næsta ári og dreifist svo yfir tíma fram til ársins 2013 og jafnvel 2014.

Þetta kemur fram í tillögum að styrkingu dómstóla til að mæta auknu álagi vegna efnahagshrunsins en þær voru unnar í dóms- og mannréttindaráðuneytinu, og birtar á vef Alþingis fyrr í mánuðinum.

Í skjalinu segir að fyrirsjáanlegt sé að ágreiningsmál frá slitastjórnum vegna krafna í þrotabú, einkum þrotabú fjármálafyrirtækja, munu vera mikil að umfangi og berast héraðsdómi hratt. Frá 1. janúar 2009 hafi 637 slík mál borist og er um fimm hundruð þeirra enn ólokið. "Munu mál af þessum toga koma fyrir héraðsdóm að fullum þunga á árinu 2011 og meðferð þeirra standa yfir fram eftir ári 2012."

Jafnframt segir að þessi mál, sem varði oft flókin lögfræðileg málefni, muni koma fyrir Hæstarétt af fullum þunga frá og með upphafi ársins 2011.

Enn mikil óvissa

Einnig segir í skjalinu að þó svo gengið hafi verið eins langt og unnt er við að kortleggja væntanleg viðbótarverkefni dómstóla vegna hrunsins er enn töluverð óvissa um umfangið. Því sé nauðsynlegt að ráðstafanir feli í sér sveigjanleika.

Einnig er komið inn á stofnun millidómstóls og segir að Hæstiréttur sinni í dag fremur hlutverki áfrýjunardómstóls en æðsta dómstóls þjóðar. Því megi líta á stofnun millidómstóls sem hluta af þeirri viðleitni stjórnvalda að tryggja að réttarvörslukerfið geti tekist á við það umfangsmikla uppgjör sem óhjákvæmilegt er.

Bent er á að svigrúm sé til staðar til að koma slíku millidómstigi á, þar sem mál frá sérstökum saksóknara muni vart fara berast Hæstarétti fyrr en í árslok 2011 eða byrjun árs 2012.

Hæstiréttur.
Hæstiréttur. mbl.is/GSH
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert