Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt 26 ára gamlan karlmann í árs fangelsi fyrir að slá lögreglumann í andlitið. Þetta gerðist í júlí í sumar í Vestmannaeyjum.
Maðurinn hefur áður fengið dóma fyrir umferðarlagabrot, brot gegn fíkniefnalögum og fyrir líkamsárásir. Nú í febrúar fékk hann 10 mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir líkamsárás og rauf því skilorð þess dóms með árásinni á lögreglumanninn.