Lögreglan á Eskifirði, í samvinnu við tollgæsluna á Eskifirði, fór um borð í flutningaskipið El-Bravo sem lá við Mjóeyrarhöfn við Reyðarfjörð í morgun. Við leit í skipinu lagði tollgæslan hald á óverulegt magn af vindlingum. Í tengslum við aðgerðina voru tveir karlmenn handteknir og fór lögreglan í húsleit á heimili þeirra í Fjarðabyggð.
Hald var lagt á nokkur grömm af kannabis, neysluáhöld og kannabisplöntu, ásamt smygluðum vindlingum. Málin teljast upplýst og hefur mönnunum verið sleppt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.