Merking hefur verið sett á styttuna af Jóni Sigurðssyni á Austurvelli en á nýársdag rennur upp afmælisár Jóns en hann fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní 1811.
Afmælisins verður minnst með margvíslegum hætti allt árið en merking styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli markar upphaf afmælishaldsins, segir í tilkynningu.
Einar Jónsson myndhöggvari gerði styttuna og lágmyndina „Brautryðjandinn“ í tilefni af 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar 1911 og hún var reist fyrir framan Stjórnarráðshúsið 10. september það ár. Styttan var flutt á Austurvöll 1931. Strax árið 1911 var rætt um að merkja styttuna og oft hefur verið minnst á það síðan en aldrei orðið af því fyrr en nú.
Það eru forsætisráðuneytið og Listasafn Einars Jónssonar sem standa að merkingunni að tillögu afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar.
Merkingin er koparplata á bakhlið fótstalls styttunnar og afhjúpuðu þær Sólveig Pétursdóttir formaður afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar og Júlíana Gottskálksdóttir forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar merkinguna í dag.