Tvö ný ráðuneyti verða til um áramótin með sameiningu eldri ráðuneyta. Þannig sameinast dómsmála- og mannréttindaráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneyti í nýju innanríkisráðuneyti sem verður fyrst um sinn með lögheimili að Skuggasundi 3 í Reykjavík en flytur síðan að Sölvhólsgötu 7. Ögmundur Jónasson verður innanríkisráðherra.
Þá verður til nýtt velferðarráðuneyti með sameiningu félags- og tryggingarmálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis. Guðbjartur Hannesson verður velferðarráðherra.
Nýju ráðuneytin voru kynnt á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í dag.