Eignarhaldsfélagið Fasteign hf.,
hefur verið dæmt til að greiða arkitektastofu rúmlega 121 milljón vegna hönnunar á ráðhúsi fyrir Reykjanesbæ og höfuðstöðvar fyrir HS-orku. Hætt var við byggingu hússins haustið 2008. Fasteign hefur þegar greitt 118 milljónir vegna verksins.
Vinna við hönnun hússins hófst í ársbyrjun árið 2007, en það átti að rísa á Fitjum í Reykjanesbæ. Til stóð að bæjarskrifstofur Reykjanesbæjar og skrifstofur Hitaveitu Suðurnesja yrðu í húsinu. Lögð var áhersla á að verkið gengi hratt fyrir sig og var ekki búið að ganga frá formlegum samningi um greiðslur þegar hönnun hófst.
Upphaflega átti hús undir bæjarskrifstofurnar að vera 4000 m2 og höfuðstöðvar Hitaveitunnar um 3000 m², samtals um 7000 m². Eftir því sem verkinu vatt fram stækkaði flatarmál væntanlegs húss. Niðurstaðan varð að lokum sú að húsnæðið yrði samtals 11.662 m2 í tveimur tengdum byggingum.
Ákveðið var að stöðva vinnu við hönnun hússins 6. október 2008 vegna erfiðleika við fjármögnun verksins. Þá var að mati arkitektastofnunnar, Arkitektur.is ehf, búið að ljúka um 66% af vinnu við hönnun hússins.
Arkitektastofan krafðist þess að fá greiddar rúmlega 121 milljón króna auk verðbóta og féllst Héraðsdómur Suðurnesja á þá niðurstöðu.
Bergur Hauksson, framkvæmdastjóri Fasteignar ehf, segir að Fasteign sé þegar búið að greiða 118 milljónir til Arkitektur.is ehf. Ágreiningur hafi verið hins vegar um endanlegt uppgjör. Hann sagði að þessi niðurstaða væri því ekki fjarri því sem félagið hefði reiknað með.
Bergur sagði að ekkert hefði verið unnið frekar að hönnun hússins frá haustinu 2008 og alls óvíst um að húsið muni nokkurn tímann verða byggt. Forsendur fyrir byggingunni hefðu brostið haustið 2008 eins og svo margt annað á þeim tíma.