Gert ráð fyrir 90 milljóna hagnaði

Bolungarvík
Bolungarvík

Rúmlega 90 milljóna króna hagnaður verður af rekstri Bolungarvíkurkaupstaðar á árinu 2011 samkvæmt fjárhagsáætlun sem var tekin til síðari umræðu á bæjarstjórnarfundi 30. desember og  samþykkt með atkvæðum allra bæjarfulltrúa.
 
Samkvæmt áætluninni verður 15,9 milljóna króna hagnaður af rekstri A-hluta bæjarsjóðs en stofnanir í B-hluta munu skila 1,2 milljóna króna hagnaði af reglulegri starfsemi. Ef óreglulegar tekjur eru teknar með verður hagnaður af samstæðu A og B hluta rúmlega 90 milljónir.
 
Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að tekjur sveitarfélagsins verði 618 milljónir en þar af verði tekjur A-hluta 507 milljónir. Þá er gert ráð fyrir að í árslok 2011 verði skuldir sveitarfélagsins orðnar 1002 milljónir en þar af verði skuldir A-hluta 739 milljónir. Því verður skuldahlutfall samstæðunnar 1,62 og skuldahlutfall A-hluta 1,46.
 
Gjaldskrár voru í flestum tilvikum hækkaðar í takt við verðlag eða um 2% en  engar breytingar voru gerðar á gjaldskrám leikskóla, tónlistarskóla, heilsdagsvistun, mötuneytis og heimaþjónustu.
 
Helstu fjárfestingar og viðhaldsverkefni ársins eru að lokið verður við framkvæmdir við Félagsheimili Bolungarvíkur og fyrri hluti snjóflóðavarna í Traðarhyrnu verður kláraður. Auk þess verður aðgengi ferðamanna að sjóminjasafninu í Ósvör bætt, kláruð verður tengibygging milli grunnskóla og sundlaugar, húsnæði Drymlu og félagsmiðstöðvarinnar að Vitastíg 1 verður lagfært að utan og málað og aðgengi fatlaðra að Ráðhúsinu verður bætt. Á hafnarsvæðinu verður flotbryggja lengd um 30 metra og ráðist í viðgerð á brimvarnargarðinum fyrir utan Brimbrjótinn auk þess sem öldudempandi flái verður gerður innan við Brjótinn. Þá er gert ráð fyrir ganga frá lýsingu við nýja vegtengingu milli hafnarsvæðanna.
 
Fjárhagsáætlun ársins 2011 gerir ráð fyrir hallalausum rekstri sveitarfélagsins án þess að gripið sé til álags á útsvar eins og Bolvíkingar hafa þurft að búa við undanfarin tvö ár

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert