Sjómenn byrjaðir að róa

Skipverji á Háey II ísar aflann.
Skipverji á Háey II ísar aflann. mbl.is/Hafþór

Sjómenn hafa hafið róðra á nýju ári og á Húsavík var verið að landa úr línubátnum Háey II nú síðdegis. Aflinn var um sex tonn, ýsa og þorskur til helminga og ekki róið langt eftir honum.

Að sögn Aðalsteins Júlíussonar skipstjóra var línan lögð á Skjálfanda í þessum fyrsta róðri ársins en samkvæmt veðurspám dagsins átti hann ekki von á að komast í fleiri róðra á næstu dögum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert