Hlé var gert á þingflokksfundi VG sem hófst kl. 12 í dag. Ástæðan er sú að kl. 15 hófst útför Grétars Áss Sigurðssonar, föður Guðfríðar Lilju þingflokksformanns VG.
Þingflokksfundurinn hefst að nýju kl. 17. Á fundinum er fjallað um ágreining sem verið hefur innan þingflokksins og sérstaklega um ákvörðun þriggja þingmanna hans að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um fjárlög.